Monday, October 21, 2013

Krakow í október 2013

Það var einhverntíma síðasta vetur eða sem ákveðið var að taka þátt í kóramóti í Krakow í Póllandi. þar áttu að taka þátt einir 11 kórar og syngja hver sitt prógram í tónlistarhöll eða húsi sem kannski líkist Salnum í Kópavogi.

Söngstjórinn, hún Kristina, valdi prógram til að flytja og var það eingöngu íslensk tónlist. Mér skildist að það hefði verið óskað eftir tónlist frá heimalöndum kóranna. Það kom nú í ljós að misbrestur var á því en það gerði ekkert til að mínu viti.

Tónlistin var æfð með öllum kórnum á vormánuðum og síðan tekið til við æfingar aftur í september. Kórinn hélt síðan tónleika þann 26. september í Árbæjarkirkju. Þeir voru með öllum hópnum, bæði þeim sem ætluðu að fara og líka hinum. Þessir tónleikar tókust ekkert sérstaklega vel að mínu mati og kannski fleiri. Eins og þekkt er hefði væntanlega þurft fleiri æfingar.

Ein æfing var svo með hópnum sem ætlaði út og tókst hún vægast sagt hörmulega. Það segir sig auðvitað sjálft að þegar burðarásum úr röddum er kippt í burtu að það þarf að æfa þá sem eftir standa mikið betur.

En með þetta í farangrinum lögðum við upp frá Árbæjarkirkju í langferðabifreið um kl 9 fimmtudaginn 3. okt. Bjarni hafði útvegað þessa bifreið sem flutti okkur og var fargjaldið 1500 á mann hvora leið eða 6000 kall á parið. Það var vel sloppið enda fór hver einasti kjaftur með rútunni.

Allt gekk eins og í sögu í Keflavík og flugvélin var á tilsettum tíma og flaug þennan spöl á 4 tímum. Auðveldlega tókst að komast í gegnum flughöfnina í Katovice og síðan tók við 1, 5 tíma akstur á hótel.
Hótelið heitir Novotel City West og er ca 4 km frá miðbænum. Það reyndist nú bara snyrtilegt hótel með rúmgóðum og ágætum herbergjum. Hópurinn var á annarri hæð þannig að það gat nú ekki verið þægilegra. Á fyrstu hæðinni var matsalur og bar. Eftir að búið var að koma sér fyrir fór fólkið að fá sér að borða, sumir fóru út og fengu eitthvað lítið og ómerkilegt en aðrir og þar á meðal við fengum okkur að borða á hótelinu og var það bara ljómandi gott.

Á föstudagsmorguninn vorum við á fótum kl 7;30 og fórum í morgunmat sem var þokkalega góður en þó vantaði beikon sem mér þótti frekar fúlt. Að loknum morgunverði tók hópur af fólki sig saman og fór í strætó í bæinn. Það gekk nú ekki andskotalaust en hafðist þó fyrir rest. Erfiðlega gekk að borga og sluppu sumir billega. Enginn var þó tekinn í arrest. Við löbbuðum um bæinn í ágætu veðri, það var lygnt en hafði fryst um nóttina. Fengum okkur hádegisverð á viðeigandi tíma en tókum svo leigubíla heim á hótel. Lögðum ekki í strætó meira.

Korter fyrir 15 voru svo teknir bílar á konsertstaðinn en þangað voru um 4 km að sögn. Kórinn æfði svo í þennan hálftíma sem úthlutað var og því miður var þetta nú ekki upp á það besta. Aðeins var svo æft þegar út úr húsinu var komið. Að þessu loknu var eitthvað rölt og síðan fékk fólkið sér að borða. Sumir borðuðu í tónlistarhöllinni en við ásamt fleirum löbbuðum yfir ána og fengum okkur að borða þar. Að þessu loknu fór fólkið í kórskrúðann og kom sér fyrir í salnum. Við vorum þriðju í röðinni af fjórum kórum. Okkur tókst ekki vel upp að mínu mati og voru hinir kórarnir mun betri. Ætla ekki að fjalla meira um það.

Þegar öllu var svo lokið tók nú við eitt ævintýrið enn og það var að komast heima á hótel. Það hafði engum hugkvæmst að panta rútu til að flytja fólkið milli staða þannig það það þurfti að bíða heillengi eftir að allir gætu fengið leigubíl. Á endanum tókst þetta þó.
Við vorum nú orðin lúin þegar heim kom á hótelið en stoppuðum þó á barnum og fengum okkur hressingu.

Næsti dagur var laugardagur og þá voru allir snemma á fótum líka því við þurftum að vera komin í kirkju Péturs og Páls en þar áttu allir kórarnir að syngja kl 10:30. Við vorum númer sjö í röðinni af 11 kórum og fengum enga upphitun eða neitt. Það skilaði sér líka þannig að við sungum Heyr himnasmiður alveg hörmulega. Seinna lagið var þó skárra. Ég held að allir hafi verið þeirri stund fegnastir þegar þetta var búið, við komin heim á hótel og úr göllunum. Ekki meiri söngur í þessari ferð.

SMG var ekki í kirkjunni heldur fór hún í stórt moll sem var og er þarna í grenndinni. Við Bjarni tókum saman leigubíl á hótelið og svo aftur í mollið en þar hittum við konur okkar. Við SMG vorum dágóða stund þarna og eitthvað var nú verslað en verðlag virðist almennt vera hagstæðara í Póllandi en hér. Þegar heim kom á hótelið hvíldum við okkur aðeins og fórum svo í matsalinn niðri og þar voru Ragna og Steini að ljúka við að borða. Við sátum hjá þeim og þau tóku okkur bara hlýlega. Buðu okkur svo upp á herbergi í samástund á eftir.

Síðan rann upp sunnudagurinn bjartur og fagur. Við vorum á fótum kl 8 og fórum í morgunmat en kl 10 kom rúta og sótti okkur til að fara í saltnámurnar. Námur þessar eru einhver mest sótti túristastaður í Krakow en þangað koma á hverju ári um ein milljón ferðamanna. (Hér á að koma linkur inn á sögu námunnar). Ferðin í gegnum námurnar tók um 2 klukkustundir og var þetta bara fróðlegt og gaman. Rútan beið eftir okkur og keyrði okkur á markaðstorgið. Þar fengum við okkur að borða og síðan var fyrirhugaður göngutúr með leiðsögn um borgina. Við vorum þarna 8 saman sem tókum okkur út úr og löbbuðum í Gyðingahverfið og skoðuðum það. Við vorum búin að skoða hinn hluta borgarinnar á labbinu fram til þessa, auk þess sem við vissum að við myndum ekki heyra neitt í leiðsögukonunni.
Þetta var fínn göngutúr og við tókum svo leigubíl heim á hótel.

Eftir að heim kom var stutt stopp og síðan var sjænað upp og haldið á fínan veitingastað sem búið var að panta á. Nú var búið að panta leigubíla fyrir alla og var það mikill munur.  Maturinn á þessum stað var bara fínn og voru bornir fram fimm réttir. Steinunn lenti reyndar í hremmingum út af hnetuofnæminu og var nú frekar klaufalega staðið að því að lagfæra það. Allt um það þetta kláraðist allt og allir komust heim á hótel og einhverjir ónefndir bættu aðeins á sig á barnum þó kannski nóg hafi verið komið.

Mánudagurinn fór síðan í að taka saman, gera upp og fljúga heim. Það gekk allt að óskum og þarf ekki að fjölyrða um það hér.

Lýkur þar með pistli þessum

Myndasyrpa frá Krakow

Myndirnar voru teknar á Samsung SIII













Thursday, May 23, 2013

Barcelona í maí 2013

Við Steinunn höfðum stundum rætt um að gaman gæti verið að heimsækja Barcelona. Höfðum heyrt að það væri falleg borg, margt að sjá og gott að vera. Aldrei hafði samt orðið af ferð. Þá bar það til að Guðmundur Guðlaugsson hringdi sem oftar og þá höfðu þau hjón verið að ræða um að skreppa til Barcelona og spurði hann hvort við værum ekki bara til í að koma með. Við settum á fund og málið var afgreitt; við ætluðum að fara með. Nú var undinn að því bráður bugur að panta ferðina en það voru Heimsferðir sem voru með þetta á dagskránni. Nokkrar spekúlasjónir urðu með hvaða hótel ætti að velja og að lokum varð ofan á að velja Hotel Catalonia Berna en það er ágætlega sett miðað við miðpunkt borgarinnar.

Svo rann brottarardagurinn upp en það var 1. maí baráttudagur verkalýðsins. Guðmundur og Stína komu og fóru svo samferða okkur á völlinn. Flogið var kl. 09:30 og vorum við mætt um tveimur tímum fyrir brottför eins og fyrir var lagt. Vel gekk í gegnum vopnaleit og slíkt enda þetta fólk þekkt að öðru en hryðjuverkum. Síðan var þetta hefðbundna í Fríhöfninni og eitthvað keypt, allavega smávegis af vínföngum svona til öryggis. Maður veit nefnilega aldrei!

Flugið gett alveg ágætlega enda færð góð og skyggni ágætt, smá ókyrrð var yfir Frakklandi en ekkert alvarlegt.

Einnig gekk ágætlega í gegnum flugstöðina í Barcelona og þar beið síðan rúta sem flutti fólkið á tilheyrandi hótel. Hótelið okkar reyndist þrifalegt og ágætt í alla staði. Það kom  í ljós við innritun að Guðmundur og Stína voru ekkert bókuð inn á hótelið þrátt fyrir að vera með staðfestingu um það. Þetta leysist þó farsællega og fengju þau herbergi nr. 423.  Við vorum aftur á móti á 326.

Eftir að hafa komið okkur fyrir, tekið smá hvíld og áttað okkur á aðstæðum fengum við okkur göngutúr niður á Catalunya torgið en þar á Ramblan upphaf sitt. Hungur var farið að sverfa að og eftir að hafa skoðað nokkra matseðla sem voru úti við fórum við inn á Tapas stað og borðuðum. Það kom mér þægilega á óvart hvað mér fannst þetta gott enda orðinn glorsoltinn. Ekki skemmti heldur ölið. Það hittist nú þannig á að Barcelona FC var að spila seinni leikinn við Bayern. Leikurinn var sýndur á hæðinni fyrir neðan þar sem við borðuðum. Það er skemmst frá að segja að ekki var nú stemningin mikil hjá spönskum enda töpuðu þeir 0-3 og samanlagt 7-0 sem er ótrúlegt. Ég hafði nú svo sem látið mér detta í hug að fara á leikinn, en tímdi því svo ekki þegar til kom. Sé ekkert eftir því.
Eftir matinn var labbað heim og í háttinn enda smá flugþreyta í liðinu.

Daginn eftir var fimmtudagur og við mættum um áttaleytið í morgunmat sem var ágætur. Meira að segja beikon og egg sem er það albesta sem hægt er að fá á ferðalögum. Stendur með manni langt fram á dag. Að loknum morgunverði var gengið niður á Catalunya torgið og stigið um borð í langferðabifreið og farið í skoðunarferð um borgina. Með í för var íslenskur fararsjóri sem ég man ekki í augnablikinu hvað heitir en það var skýr og skelegg ung kona. Við fórum vítt og breitt um borgina og skoðuðum það helsta. Gengum um Gaudi-garðinn sem var alveg magnað, en Gaudi er einhver mesti listamaður Barcelonaborgar og liggja eftir hann margar glæsilega byggingar og fleira. Allra frægust er þó Sagrada kirkjan sem enn er í byggingu en vinna við hana hófst á árinu 1882. Reiknað er með að henni verði lokið eftir 12-15 ár.

Sagrada

Eftir skoðunarferðina var öllum gefinn laus taumur en við í Ferðafélaginu AB-1019 (Þetta heiti hefur ekki komið fram áður en er sett hér fram sem hugmynd.)  gengum niður Römbluna og í gotneska hverfið en þar er margt að sjá, m.a. er þar dómkirkjan sem er gríðarlega falleg og verður komið að því síðar.

Um kvöldið borðuðum við á veitingastað sem heitir Maur.........eitthvað og fengum ágætan mat. Staðurinn var í göngufæri frá hótelinu. Að borðhaldi loknu tókum við leigubíl að gosbrunnasýningunni þar sem við stoppuðum góða stund og nutum tónlistar og lita. Þar gengu um drengir og seldu bjór á misjöfnu verði en góður var hann. Þessi sýning er afar falleg og músikin sem flutt var með átti einstaklega vel við.

Tókum svo leigubíl heim Leigubílar eru ekki ýkja dýrir þarna og þegar gjaldið deilist á 4 persónur er það ekki   hátt pr. mann.

Einhverntíma að deginum var þetta ort af engu tilefni:
Situr einn og hengir haus,
hann er eins og bjáni.
Eflaust kemur auralaus,
Eiríkur frá Spáni.

Guðmundur sendi Ólafi vini okkar þessa vísu og nokkru síðar kom svar sem nánar verður gerð grein fyrir síðar.

Föstudagurinn hófst eins og flestir aðrir dagar... að morgni. Við vorum fyrr á fótum en daginn áður því nú skyldi haldið í skoðunarferð til Montserrat sem er fjallaþorp í ca. klukkutíma ferð frá Barcelona. Við lögðum af stað á tilsettum tíma, sami fararstjóri var eins og í gær og flutti hún fróðlegan pistil á leiðinni. Montserrat er byggt í kringum klaustur sem þar er starfandi og hefur verið um aldir. Þar er líka starfræktur drengjakór. Þegar upp var komið löbbuðum við um og skoðuðum það sem fyrir augu bar.


Þarna er eitthvað merkilegt að sjá

Hægt er að taka kláfferju upp á fjallið eða þá litla lest sem fer á teinum. Þetta eru tveir vagnar sem mætast á tilteknum stað í brautinni. Spánskir kalla þetta rennilásinn og er það nokkurt réttnefni. Þetta kom okkur SMG ekkert spánskt fyrir sjónir þar sem við höfðum séð og farið í samskonar farartæki í Ástralíu. Við tókum þá ákvörðum að láta fram hjá okkur fara að fara upp á fjallið en ekki var örgrannt um að við sæjum eftir því þegar leið á daginn.
Við fórum í kirkjuna og hlýddum á drengjakórinn syngja tvö lög um eittleytið og síðan var farið á bændamarkaðinn. Stína og Steina keyptu bæði osta og vín og verður gaman að smakka hvorutveggja.
Rútan skilaði okkur svo aftur á Catalunya torgið og við röltum eitthvað um og fengum okkur hressingu við hæfi. Það verður að segjast að bjórinn þeirra Börsunga, Esterella, einstaklega góður og enginn vandi að drekka mikið af honum.

Eftir þetta ferðalag tókum við leigubíl niður að hafnarsvæðinu og röltum þar um góða stund og fengum okkur belgiska vöfflu og crepe pönnuköku. Þetta smakkaðist harla vel. Þarna við höfnina er gríðarstór stytta af Kólumbusi þeim mikla landkönnuði sem ranglega er sagður hafa fundið Ameríku. Það var að sjálfsögðu Íslendingurinn Leifur heppni sem það gerði. En spánskir vita víst ekki betur.

Eftir að hafa gengið um hafnarsvæðið löbbuðum við í rólegheitlum í gegnum stóran garð og upp í Born hverfið. Þar eru afar þröngar götur og mikið listamannalíf. Komum meðal annars við í búð sem selur eftirprentanir af Picasso myndum. Skoðuðum ekki sjálft safnið.

Þetta Born hverfi er afar skemmtilegt og ætti enginn að láta það fram hjá sér fara.

Víkjum það að kveðskap. Þess var getið áður að eftirfarandi vísa hafði borist frá Ólafi vini vorum:
Með lítið vit og lúna hönd
latur þurfalingur.
Æðir nú viltur í önnur lönd
Eiríkur vitleysingur.

Þetta var honum líkt. En ekki var hægt að láta þessu ósvarað og því varð þessi til:
Barcelonaborg er flott,
bjórinn fær að streyma.
Ósköp þykir okkur gott
að Óli situr heima.

Og með vísan til þröngra stræta í Born hverfinu:
Um strætin bæði þétt og þröng
þeysa menn á hjóli.
Ef birtist hér með sálmasöng
sæti fastur...Óli.

Ekki bárust fleiri ljóð frá Ólafi.

Um kvöldið leituðum við uppi stað sem þau Dabba og Sibbi höfðu bent á en hann heitir 4cats. (Dabba er starfsmaður Heimsferða og fyrrverandi kórfélagi og Sibbi er matreiðslumaður í Seðlabanka Íslands.)  Eftir nokkra leit fundum við staðinn og fengum okkur saltfisk. Þetta var fínn matur. Undir fiskinum var mauksoðinn laukur og eitthvað fleira og oná honum af Allioli. Þetta smakkaðist vel.

Að þessu loknu var haldið í háttinn enda góður dagur að kveldi kominn.

Laugardagur rann upp bjartur og fagur og var hann að öllu leyti frjáls og ómótaður. Það lá auðvitað fyrir að hugur var í helmingi ferðalanga að líta aðeins í búðir og verður lesendum eftirlátið að geta sér til um hvor helmingurinn það var. 

Eftir ágætan morgunverð var farið í hópgöngu niður á Catalunya torgið og þar skiptist flokkurinn í tvær fylkingar og voru tvö í hvorri. Síðan var farið búð úr búð og skoðað allt hvað af tók. Pokum fjölgaði smátt og smátt en mest þó eftir H&M enda er það uppáhaldsverslun margra, sérstaklega kvenna.

Guðmundur kvað:
Um Römbluna þau ramba prúð
með radarinn í lagi.
Steinunn fer þar búð úr búð
með bónda í eftirdragi.

Þegar komið var vel fram yfir hádegi var aftur skipt liði og nú fórum konur saman en karlar tóku til við að skoða mannlíf og gera bjórtest. Allt fór þetta vel fram. Guðmundur fékk að vísu kvíðakast þegar hann fattaði að hann var Stínulaus, en sem betur fer bráði fljótt af honum.

Kvíðakastið

Við félagarnir settumst eitt sinn sem oftar á útibar og fengum okkur ölkollu í hitanum og virkaði ölið svo vel að við urðum óskaplega góðir af því. Varð okkur þá hugsað heim til íslenskrar sumarblíðu. Þá kvað Guðmundur stöku.
Það er öruggt þótt ég deyi
þegar allt er liðið hjá,
eingöngu við ilm af heyi
aftur vaknar lífsins þrá.

Ég varpaði þá fram eftirfarandi:
Ef sofna ég á sumardegi,
sunnan undir hlöðuvegg.
Upp ég hrekk við ilm af heyi, 
eða glaðvært merarhnegg.

Um kvöldið var svo haldin árshátíð Ferðafélagsins AB-1019
Eftir smá hvíld og síðan afskverum var farið niður að höfn með leigubíl og sest á stað sem heitir Plaza Real en hann var einnig eftir ábendingu frá Döbbu og Sibba. Þarna áttum við indæla kvöldstund við góðan mat og drykk. Þetta kvöld var mígandi rigning og því gengið undir regnhlífum, það sem gengið var.

Var nú komið að lokadegi þessarar ferðar, sunnudegi. Eftir morgunverð sem var nú í seinna lagi var pakkað niður og allt gert klárt til heimferðar. Töskum komið í geymslu á hóteli og síðan gengið í bæinn. Veðrið var glampandi fínt og löbbuðum við að dómkirkjunni og horfðum á Sardas-dansinn sem ku stiginn þar á hverjum sunnudegi. Þetta er hægur og rólegur dans og virtust dansarar flestir vera vel við aldur. Við skoðuðum kirkjuna og síðan var tekið til matar síns á veitingastað.
Fer nú að fækka viðburðum en rúta sótti okkur á hótelið um 14:20 og þá var haldið beint til flugvallar. Það tók rúman klukkutíma að bíða í röð eftir innritun

Í innritunarröðinni á heimleið

og síðan var varla tími til annars en fá sem smávegis í gogginn og svo var flogið heim.

Allt þetta gekk eins og í sögu og áttum við góða heimkomu. Um þessa ferð má annars segja það að hún tókst vel í alla staði, borgin er falleg, veðrið var gott og samferðarfólkið hið ljúfasta og alveg vandræðalaust. Slíkt er ekki sjálfgefið og ber að þakka.

Skrifari þessa pistils þakkar þeim sem lásu.